Hagdeild ASÍ spáir 3,2% hagvexti í ár, 3,4% hagvexti á næsta ári og 3,5% árið 2015. Hagvöxturinn verður í vaxandi mæli drifinn áfram af aukinni einkaneyslu og fjárfestingu en vægi utanríkisviðskipta í hagvextinum fer minnkandi, að því er fram kemur í nýrri hagspá ASÍ sem kynnt var í dag. Hagspá ASÍ er talsvert bjartsýnni en hagspá Seðlabankans eins og hún birtist í Peningamálum . Þar er gert ráð fyrir 2,6% hagvexti á þessu ári, 3,7% hagvexti á næsta ári og 3% árið 2016.

Í hagspánni segir að gert sé ráð fyrir því að verðbólga aukist í lok árs og verði þá komin í ríflega 3%. Verðbólga verði að jafnaði 3,9% á árinu 2015 en lækki heldur eftir það og verði undir lok spátímans 2,7%. Þróun verðlags ræðst að miklu leyti af útfærslu og tekjuskiptingaráhrifum skuldalækkunaraðgerða stjórnvalda og áhrifum þeirra á einkaneyslu. Vaxandi innflutningur, þegar líður á spátímann, mun setja þrýsting á gengi krónunnar sem skilar sér í versnandi verðbólguhorfum.

Þá gerir ASÍ ráð fyrir því að hagur heimilanna vænkist, m.a. vegna áforma stjórnvalda um skuldalækkun heimilanna. Þá hafi aukinn stöðugleiki gengis og verðlags jákvæð áhrif á heimilin á fyrri hluta spátímabilsins.