Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans gerði það sem hann kallaði atlaga að íslenskum bönkum að umræðuefni í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans.

Hann sagði óveður ríkja á mörkuðum og það dyldist engum en hitt væri annað mál að síðustu mánuði hefur borið á vafasamri hegðun á alþjóðlegum mörkuðum.

„Nýleg dæmi eru rógsherferð gegn breska HBOS bankanum sem skaðaði hann mikið, þótt tímabundið væri. Það mál er nú í rannsókn. Í annan stað er dæmi frá Írlandi, sem bendir í sömu átt.

Og því er ekki að neita að sú atlaga sem þessa dagana er gerð að íslenskum bönkum og íslenska ríkinu, en tryggingarálög á það hækkuðu í dag í yfir 400 punkta sem er fráleitt, lyktar óþægilega af því að óprúttnir miðlarar hafi ákveðið að gera úrslitatilraun til að brjóta niður íslenska fjármálakerfið. Þeim mun ekki takast það. En til álita hlýtur að koma að gera alþjóðlega opinbera rannsókn á slíku tilræði við heilbrigð fjármálakerfi,“ sagði Davíð.