Heildareignir tryggingarfélaga námu 135,5 milljörðum króna í lok október og lækkuðu um 540 milljónir á milli mánaða.

Handbært fé nam 11,6 milljörðum og lækkaði um 950 milljónir króna.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Fram kemur að útlán og markaðsverðbréf hækkuðu um 1,3 milljarða króna á milli mánaða og námu 86,6 milljörðum sem skýrist aðallega af 1,8 milljarða króna hækkun á verðtryggðum markaðsskuldabréfum sem námu 47,4 milljörðum króna og 562 milljóna króna lækkun á öðrum útlánum sem námu 9,4 milljörðum í lok október.

Skuldir tryggingarfélaga námu 79,2 milljörðum króna og eigið fé 56,2 milljörðum í lok mánaðarins.