Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 459 milljörðum króna í lok mars samanborið við 408 milljarða króna í lok febrúar.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabanka Íslands.

Þá voru erlendar skuldir Seðlabankans 290 milljarðar króna í lok mars en voru 324 milljarðar króna í lok febrúar.

Í mars 2009 er gerð sú breyting að telja með eign erlendra aðila á innstæðubréfum og viðskiptaskuld í ISK við erlend greiðslumiðlunarfyrirtæki. Sú breyting nær aftur til sept. 2008. Jafnframt var gerð sú breyting í mars 2009 að staða og hreyfingar eru nú reiknaðar á miðgengi í stað kaupgengis og nær sú breyting einnig aftur til sept. 2008.

Þann 19. nóvember 2008 samþykkti Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn að veita Íslendingum lán, hluti af því kom til greiðslu í nóvember 2008.