Hönnunarfyrirtækið Fólk Reykjavík hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun árið 2022 á afhendingu Hönnunarverðlaunanna í gærkvöld í Grósku. „Fyrirtækið þykir hafa lagt traust sitt á íslenska hönnun með eftirtektarverðum og góðum árangri,“ segir í tilkynningu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Fólk Reykjavík var stofnað árið 2017 með það að markmiði að leiða saman hönnun og framleiðslu með áherslu á sjálfbærni og hringrás hráefna. Fyrirtækið notar náttúruleg og endurunnin hráefni eins og stein, málm, gler, pappír, vottað timbur úr sjálfbært nýttum skógum, endurunnið stál og endurunnin textíl. Úr þessum hráefnum hafa meðal annars verið hönnuð og framleidd borð, hillur, vasar, kertastjakar og ljós.

„Dómnefnd telur að fyrirtækinu hafi tekist vel að sýna hverju hægt er að áorka með því að skapa vel hannaða og nytsamlega muni með sjálfbærni í huga. Á meðan framleiðsluferli og markaðssetning hafa gjarnan verið þrándur í götu sjálfstætt starfandi hönnuða hefur Fólk Reykjavík átt í farsælu samstarfi við ýmsa íslenska hönnuði, og þannig aukið vöruúrval sitt. Í vöruþróuninni er horft til sjálfbærni í framleiðslu og að vörurnar séu endingargóðar.“

Þá hafi fyrirtækið haft jákvæð áhrif með fjárfestingum sínum í hönnun auk þess að vera hvatning fyrir önnur fyrirtæki að koma auga á möguleikana sem felast í samstarfi við hönnuði og að vinna með sjálfbærni og endurunnin hráefni.