Forystumenn stjórnarflokkanna sitja nú í stjórnarráðinu ásamt aðstoðarfólki sínu og leggja lokahönd á útspil ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninganna. Þess er beðið að þeir upplýsi um tillögur sínar.

Kjarasamningar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins eru tilbúnir til undirritunar. Þeir verða þó ekki undirritaðir fyrr en aðkoma ríkisstjórnarinnar hefur verið kynnt og sátt náðst um hana.