Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti fagfjárfestir í fasteignafjárfestingum á meðal 40 þjóða Evrópu af fagtímaritinu IPE Real Estate. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Arion Banka.

Í umsögn dómnefndar segir með annars að sjóðurinn hafi brugðist tímanlega við breytingum í fjárfestingarumhverfinu með því að nýta tækifæri á fasteignamarkaði og ná að hámarka virði eignasafnsins í erfiðum markaðsaðstæðum.

Fagtímaritið IPE Real Estate sérhæfir sig í umfjöllun um fasteignafjárfestingar, og veitir árlega fagfjárfestum viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í fasteignafjárfestingum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn keppti í flokknum „Önnur lönd Evrópu“ en þau eru um 40 talsins og voru t.d. lífeyrissjóðir frá Ítalíu og Spáni tilnefndir til verðlauna í flokknum.

Á undanförnum árum hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn aukið vægi fasteignatengdra fjárfestinga til að bregðast við skorti á fjárfestingarkostum og auka áhættudreifingu sjóðsins. Markmið sjóðsins er að fjárfesta í vel staðsettu atvinnuhúsnæði með traustum leigutökum og langtíma leigusamningum. Fasteignafjárfestingar sjóðsins hafa reynst mikilvægur þáttur í árangri sjóðsins.

Sjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 136 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru um 50 þúsund talsins. Hann hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald og hentar jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.