Gengi bréfa í Össuri lækkaði um 1,77% í 185 milljóna króna viðskiptum í dag. Mest viðskipti voru með bréf í Össuri, 138 milljóna króna velta var með bréf í Högum og 134 milljóna króna velta með bréf í N1.

Þá var 109 milljóna króna velta með bréf í Icelandair Group og 99 milljóna króna velta með bréf í Eimskipum.