Gengi hlutabréfa N1 hækkaði um 1,43% í Kauphöllinni í dag í 162 milljóna króna veltu. Gengi hlutabréfa félagsins stendur í 17,75 krónum á hlut. Þetta er mesta hækkunin á hlutabréfamarkaði.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,85% og Regins um 0,31%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa Sjóvár um 1,42%, Eimskips um 0,83%, VÍS um 0,74% og Vodafone um 0,46%. Þá lækkaði gengi bréfa TM um 0,34% og Haga um 0,24%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,04% og endaði hún í 1.184 stigum við lok dagsins. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 411,6 milljónum króna. Mest var veltan með bréfa N1.