Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,23% í dag og endaði í 1885,22 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,23% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa VÍS, eða um 1,86% í viðskiptum sem hljóða upp á milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 8,23 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Nýherja, eða um 1,78% í litlum 20 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Nýherja er þá 17,15 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Regins, eða um 0,22% í 229 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Regins er þá 22,45 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Símans einnig, eða um 0,63% í viðskiptum upp á 206 milljónir króna. Verð á hvern hlut er þá 3,17 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 2,4 milljarða króna viðskiptum. Vísitalan hækkaði um 2,2% í marsmánuði og var meðal dagsvelta 1,8 milljarða króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 3,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,4 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 3,3 milljarða króna viðskiptum. Skuldabréfavísitalan hækkaði um samtals 0,6% í marsmánuði og var meðal dagsvelta 5,1 milljarða króna.