Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar, hefur hætt dreifingu á Fréttablaðinu inn á heimili á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Fréttablaðsins.

Fréttablaðið verður í stað að­gengi­legt á yfir 120 stöðum á höfuð­borgar­svæðinu, á Suður­nesjum, Ár­borg, Ölfusi, Akra­nesi, Borgar­nesi og Akur­eyri. Félagið segir að þessi breytta dreifing tryggi snertiflöt við 85% landsmanna.

„Á­fram verður unnið að frekari dreifingu blaðsins. Þá hefur sá fjöldi sem les blaðið dag­lega á raf­rænu formi, ýmist í appi eða á pdf-formi, vaxið jafnt og þétt. Ekki er búist við að breytt dreifing muni hafa teljandi á­hrif á lestur blaðsins,“ segir í fréttinni.

Jón Þóris­son, for­stjóri Torgs, segir að dreifing blaðs til tugþúsunda heimila sé óhemju kostnaðarsöm og að áætlaður kostnaður á þessu ári hefði orðið yfir einn milljarður króna. Hann bætir við að fullreynt hafi verið að breyta dreifingarsamningi við Póstdreifingu, sem dreift hefur Fréttablaðinu um árabil.

Þá hafi félagið haft vaxandi áhyggjur af því að dreifingarferlinu fylgi „óþarfa sóun“. Það sé í takti við vaxandi umhverfisvitund að lágmarka kolefnisspor í starfseminni.

„Í upp­hafi komust stofn­endur Frétta­blaðsins að þeirri niður­stöðu að dreifa yrði blaðinu í heima­hús því hér á landi væri fjöl­förnum stöðum á borð við það sem menn þekkja frá öðrum löndum, ekki til að dreifa. Nú hafa ýmsar breytingar orðið á sam­fé­lags­legum háttum þannig að fjöldi fólks kemur oft í viku í verslanir stór­markaða, verslana­mið­stöðvar, þjónustu­stöðvar olíu­fé­laga, sund- og í­þrótta­mið­stöðvar og svo mætti lengi telja,“ segir Jón.