Hagar, móðurfélag Bónuss, Hagkaups og Olís, og eigendur Dista ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á öllu hlutafé Dista, heildverslunar með áfengar og óáfengar drykkjarvörur. Kaupin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Dista heildverslun var stofnuð árið 2000 og hefur starfsemi félagsins vaxið jafnt og þétt frá stofnun, að því er segir í fréttatilkynningu.

Dista er m.a. samstarfsaðili drykkjavöruframleiðenda á borð við Royal Unibrew, sem framleiðir m.a. bjórana Faxe, Royal og Slots auk úrvals óáfengra drykkja, og J. García Carrión sem er einn stærsti framleiðandi léttvíns og ávaxtasafa í Evrópu.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að ná samkomulagi við eigendur Dista um kaup á félaginu. Vöruúrval Dista fellur vel að starfsemi Vínfanga, sem hefur um árabil verið innflutnings- og söluaðili fyrir fjölbreytt úrval léttvína frá helstu vínræktarsvæðum heims. Að auki verður ánægjulegt að geta boðið viðskiptavinum verslana Haga upp á ávaxtasafa og aðra óáfenga drykki frá samstarfsaðilum Dista, sem eru meðal þeirra fremstu í Evrópu.“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.

Stóðu á tímamótum með fyrirtækið

Seljendur Dista, Katrín Gunnarsdóttir og Sigurður Örn Bernhöft, segjast ánægð með samkomulagið sem opni ýmsa eftirsóknarverða möguleika fyrir birgja félagsins

„Við stóðum á tímamótum með fyrirtækið sem var að stækka og þróast frekar. Markaðurinn er óðum að breytast og er þetta því eðlilegt skref og til hagsbóta fyrir alla aðila,“ er haft eftir Katrínu og Sigurði Erni.

Dista ehf. velti tæplega 1,6 milljörðum króna árið 2021 og hagnaðist um 35,6 milljónir, samkvæmt nýjasta ársreikningi félagsins í fyrirtækjaskrá Skattsins. Eignir félagsins voru bókfærðar á 288 milljónir í árslok 2021 og eigið fé var um 76 milljónir.