Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) hækkaði um 0,1% í apríl og er nú með gildið 102,8. Gildi hagvísisins hefur ekki verið hærra í uppsveiflu síðan 2006. Hagvísirinn bendir til hagvaxtar yfir langtímaleitni.

Hækkunin nú skýrist af aukinni kortaveltu heimila, vexti innflutnings, meiri fiskafla og hækkun væntingavísitölu. Áhættuþættir er sem fyrr í ytra umhverfinui sem ógnað gætu hagvexti s.s. tengdir alþjóðastjórnmálum, óvissu í efnahagsmálum nýmarkaðsríkja og Kína og áhrifum á helstu viðskiptalönd.

Hagvísir Analytica er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup.

Í apríl hækkuðu fimm af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá mars hækkuðu hinsvegar fjórir af sex undirþáttum.