Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði var 6,4% meiri en í júní 2006, en það sem af er árinu hefur hann dregist saman um 1,6% miðað við sama tímabil 2006 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Aflinn nam alls 111.570 tonnum í júní 2007 samanborið við 135.515 tonn í júní 2006.

Botnfiskafli jókst um rúm 2.900 tonn frá júnímánuði 2006 og nam tæpum 39.900 tonnum. Þorskafli jókst um tæplega 900 tonn, ýsuaflinn jókst um rúm 500 tonn og ufsaaflinn dróst saman um 1.000 tonn.

Flatfiskaflinn var nánast óbreyttur milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 67.300 tonnum og var að stærstum hluta síld og kolmunni. Samdráttur í uppsjávarafla nemur tæplega 27.600 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var tæplega 2.000 tonn samanborið við tæplega 1.300 tonna afla í júní 2006.