Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,3% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.205 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 9,1 milljarður en þar af eru um 8,9 milljarðar með bréf í Landabankanum [ LAIS ] en utanþingsviðskipti fóru fram með bréf í bankanum fyrir opnun í morgun.

Þá er um 150 milljóna króna velta með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,8% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 155,3 stig.