Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 í 4.473 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Össur [ OSSR ] hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 2,1 milljarður en þar af eru um 1,7 milljarður í Glitni [ GLB ] en eins og greint var frá í morgun fóru fram mikil utanþingsviðskipti með bréf í félaginu fyrir opnun markaða.

Velta með bréf í Kaupþingi [ KAUP ] er um 170 milljónir og velta með bréf í Straum [ STRB ] er um 140 milljónir.

Krónan hefur veikst um 0,75% frá því í morgun og stendur gengisvísitalan nú í 162,3 stigum.