Erfitt hefur verið um vik að koma greiðslum til og frá Bretlandi. Stöðuna má að hluta til rekja beint til aðgerða breskra yfirvalda.

Unnið hefur verið að því að leita leiða til að leysa málið og sá hnútur virðist nú hafa verið leystur að mestu.

Þetta kemur fram á vef Seðlabankans.

Þar kemur fram að búast megi við því að það taki nokkra daga að koma greiðslum í eðlilegt horf.

Þá er minnt á að fjármálaráðuneyti Bretlands gaf 17. október 2008 út nánari yfirlýsingu vegna frystingar eigna gamla Landsbankans.

Þar kemur skýrt fram að aðgerðir breskra yfirvalda snúa aðeins að tilteknum þáttum í starfsemi gamla Landsbankans.

Á vef Seðlabankans kemur fram að vonir standa til að í kjölfar þessa takist að losa um stærstan hluta þeirra takmarkana sem verið hafa á greiðslustreymi milli Íslands og Bretlands.