Icelandair kynnir í dag Detroit í Bandaríkjunum sem nýjan áfangastað. Flogið verður fjórum sinnum í viku frá 18. maí 2023 og út október. Flogið er á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Flugtími er um sex klukkustundir.

Í tilkynningu Icelandair segir að borgin, sem er í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna, hafi verið valin af Time Magazine sem ein af borgum ársins 2022.

„Við erum mjög spennt fyrir því að bæta Detroit við okkar öfluga leiðakerfi. Borgin er áhugaverður áfangastaður og þaðan eru einnig öflugar tengingar til annarra borga í Bandaríkjunum. Þá skapast mjög góðar tengingar fyrir íbúa Detroit og nærumhverfis við Ísland og áfram til áfangastaða Icelandair í Evrópu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Flugfélagið tilkynnti fyrr í mánuðinum um að það mun fljúga til Prag og Barcelona næsta sumar. Flogið verður fjórum sinnum í viku til Prag og 2-3 vikuleg flug verða til Barcelona.

„Undanfarin ár höfum við lagt áherslu á að bæta við nýjum áfangastöðum vestanhafs sem hafa litlar tengingar við Evrópu fyrir. Þannig getum við bætt mjög þjónustu frá þessum svæðum til Evrópu og nýtt þau tækifæri sem liggja í öflugu leiðakerfi okkar og stuttum tengitíma á Keflavíkurflugvelli,“ segir Bogi.