Invik & Co. hefur aukið hlutafé sitt í D. Carnegie & Co. úr 10,2% í 17,6%. Invik & Co. er í eigu Milestone.

Eins og fyrr segir fór Invik með 10,2% hlutafjár í félaginu en hefur nú, bæði beint og óbeint ráð yfir 17,6% meðal annars með samningum við aðra hluthafa.

„Þetta er langtímafjárfesting hjá okkur. Aukið hlutafé gefur okkur tækifæri til að styrkja og efla Carnegie sem leiðandi fjárfestingabanka á Norðurlöndum,“ segir Anders Fallman, forstjóri Invik og segir Carnegie vera í sterkri markaðsaðstöðu.