Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP ehf., og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim, undirrituðu í dag á sjávarútvegssýningunni í Barcelona samning þess efnis að Brim fái OptimICE krapavélar frá KAPP í skipin Akurey AK10 og Viðey RE50.

OptimICE er hraðkælikerfi bæði til sjós og lands sem framleiðir ískrapa úr sjó. Fljótandi ísskrapinn umlykur fiskinn og kælir hann hratt niður fyrir 0°C og heldur hitastigi um -0,5°C.

„Þetta er mikilvægt skref fyrir KAPP að hafa gert þennan samning við Brim og sýnir að sá búnaður sem KAPP framleiðir undir vörumerkinu OptimICE er að virka mjög vel þegar kemur að kælingu á hráefnum fyrir kröfuharðan sjávarútveg,“ segir Freyr.

Nýja vélin er fyrsta krapavélin með CO2 sem er fjöldaframleidd í heiminum en hún er í boði fyrir allar OptimICE krapavélar. Öll hönnun, þróun og smíði á vélinni hefur farið fram hjá KAPP þar sem allar krapavélar eru framleiddar.

„Þetta er mjög jákvætt skref fyrir Brim að landa þessum samningi. Við erum að mörgu leyti í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og lausnum í sjávarútvegi. Ég tala nú ekki um þegar kemur að umhverfis- og rekstarþættinum sem spilar stórt hlutverk við þessa ákvarðanatöku,“ segir Guðmundur.