Grunnurinn að fjárhagslegu veldi Kardashian fjölskyldunnar hefur verið raunveruleikasjónvarpsþátturinn Keeping Up with the Kardashians, sem sýndur er á E! sjónvarpsstöðinni. Samningurinn við E! hefur skilað fjölskyldunni milljörðum króna og verður ekkert lát þar á, ef marka má frétt Variety.

Þar segir að skrifað hafi verið undir nýjan samning til fjögurra ára og nema greiðslur til fjölskyldunnar á þessu tímabili 100 milljónum dala, andvirði ríflega 13 milljarða króna.

Þeir fjölskyldumeðlimir sem munu njóta góðs af samningnum er höfuð fjölskyldunnar, Kris Jenner, og dætur hennar Kim, Khloé, Kourtney, Kendall og Kylie. Fyrrverandi eiginmanni Kris, Bruce Jenner, mun ekki bregða fyrir í þáttunum.