Kaupþing banki hefur gefið út skuldabréf (e. structured covered bonds) að upphæð um 43,5 milljarðar króna (500 milljónir evra) til fjármögnunar á íbúðalánum bankans á Íslandi að því er segir í tilkynningu bankans.

Skuldabréfin eru með Aaa lánshæfiseinkunn frá lánsmatsfyrirtækinu Moody's Investors Service og hafa verið seld til evrópsks fjárfestis í einu lagi. Sala skuldabréfanna var í höndum Deutsche Bank.