Heildaraukning erlendrar kortaveltu hér á landi í apríl var næstum 6,7 milljarðar kr., sem er 29,1% hærri upphæð en í sama mánuði í fyrra. Hæstri upphæð var varið til gistiþjónustu eða liðlega 1,2 milljörðum. Álíka upphæð var varið í ýmsa sérhæfða ferðaþjónustu, eins og skoðunarferðir og þriðji hæsti útgjaldaflokkurinn var verslun, um 1 milljarður króna. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Meðaltals kortavelta á hvern erlendan ferðamann í apríl var um 112 þús krónur. Svisslendingar skera sig nokkuð úr þegar horft er til meðalkortaveltu á hvern ferðamann. Hver Svisslendingur keypti vörur og þjónustu fyrir að jafnaði 314 þús. króna með greiðslukortum hér á landi í apríl. Rússar eru í öðru sæti með meðalkortaveltu á hvern ferðamann upp á 213 þús. króna og Spánverjar í þriðja sæti með 168 þús. króna.