Gengisvísitalan er nú 159 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159 stig en var í gær 158,8 stig.

Krónan hefur veikst um 0,8% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,1 krónu, Evran í 122,2 krónum og Sterlingspundið í 154,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 75,4 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.