Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,21% í dag og endaði í 1902,75 stigi. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,19% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,13% í viðskiptum sem hljóða upp á 113 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 38,15 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Nýherja, eða um 2,73% í 39,6 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Eimskip er þá 246 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,59% í 175 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut N1 er 67,3 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 0,41% í viðskiptum upp á 132 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 241,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 727 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3 milljarðar króna.