Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,73% og er 5.406 stig það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Landsbankinn hefur hækkað um 4,48%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 3,23%, Alfesca hefur hækkað um 2,88%, Össur hefur hækkað um 1,39% og FL Group hefur hækkað um 1,18%. Ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi.

Gengi krónu hefur veikst um 0,39% og er 130,3 stig.