Geir H. Haarde, forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi fyrir stundu að ríkisstjórnin myndi leitast eftir því - við þá banka sem enn eru sjálfstætt starfandi – að bankarnir frysti tímabundið húsnæðislán í erlendri gjaldmynt.

Hann tók þó fram að ekkert væri enn frágengið og útfærsla á þessu yrði kynnt síðar.