Matsfyrirtækið Moody’s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar í Baa2 úr Baa3. Kemur þetta fram í tilkynningu frá fyrirtækinu til kauphallarinnar.

Einkunn fyrirtækisins án ábyrgðar ríkisins hækkar einnig um einn flokk eða í Ba1 úr Ba2. Horfur eru stöðugar í báðum tilfellum. Hækkunin kemur í kjölfar samsvarandi hækkunar á lánshæfi ríkissjóðs Íslands frá 29. júní 2015.