Norski athafnamaðurinn Endre Røsjø mun ekki leggja 1.400 milljónir króna í MP banka eins og til stóð.

„Það er verið að ganga frá því að þessi samningur falli niður,“ staðfestir Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka í samtali við Viðskiptablaðið.

Hann á von á því að sátt verði um þá niðurstöðu. Morgunblaðið sagði frá því 19. september síðastliðinn að samkomulag hefði náðst við Røsjø um að hann leggði MP banka til nýtt hlutafé og yrði í kjölfarið næststærsti eigandi bankans.

Á hluthafafundi MP banka 22. október síðastliðinn var svo samþykkt heimild til stjórnar að gefa út nýtt hlutafé fyrir 600 milljónir króna að nafnvirði. Røsjø var búinn að skuldbinda sig til að kaupa 200 milljónir af nýja hlutafénu. Gengi bréfanna var sett fast sjö krónur á hlut í viðskiptunum og myndi fjárfesting Norðmannsins jafngilda 1.400 milljónum króna. Til viðbótar átti að bjóða  stofnanafjárfestum, eins og lífeyrissjóðum, að kaupa hlut í bankanum.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .