Ingvar Eyfjörð hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Icelandic Group. Ingvar hefur víðtæka reynslu af stjórnun, sölu- og markaðsmálum fyrirtækja í matvælaframleiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Ingvar mun vinna náið með Finnboga Baldvinssyni forstjóra, að daglegum rekstri og stefnumótun félagsins. Ingvar lauk BSc pófi í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hann starfaði sem sölustjóri Tros frá 1998 til 2000. Hann tók við sem framkvæmdastjóri Tros árið 2000 og stýrði félaginu í tvö ár, eða þar til hann tók við starfi sölustjóra smásölu SÍF í Bretlandi. Hann var framkvæmdastjóri saltfisksviðs SÍF árið 2004 og tók við framkvæmdastjórastöðu hjá Fiskvali árið 2005,“ segir í tilkynningunni.

Ingvar Eyfjörð er kvæntur Margréti Elísabetu Knútsdóttur ljósmóður og eiga þau saman Knút Eyfjörð og Jökul Eyfjörð.

Við starfi Ingvars sem framkvæmdastjóri Fiskvals tekur Elfar Bergþórsson sem gegnt hefur starfi sölustjóra félagsins frá upphafi árs 2006. Elfar var sölustjóri Tros árin 2000-2005 og þar áður framleiðslustjóri Jóns Erlings 1998-2000.

Elfar er giftur Valgerði Guðbjörnsdóttur og eiga þau börnin Kolbrúnu Maríu, Emilíu Hildi og Ísak Snæ

Forstöðumaður hagdeildar Icelandic samstæðunnar

Finnbogi Gylfason hefur verið ráðinn forstöðumaður hagdeildar Icelandic samstæðunnar. Finnbogi hóf störf á fjármálasviði hjá Icelandic Group árið 1997 og hefur starfað þar síðan.

Finnbogi er menntaður viðskiptafræðingur frá University of Louisiana at Monroe í Bandaríkjunum og lagði stund á meistaranám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands með áherslu á fjármál, á árunum 2002 til 2004.

Finnbogi er kvæntur Svönu Huld Linnet og eiga þau tvö börn Kristján Flóka og Ylfu