Pizzastaðurinn við Hverfisgötu 12 hefur nú lokað en síðasti starfsdagur staðarins var síðastliðinn sunnudag. Frá þessu er greint á Facebook-síðu staðarins . Nýr staður mun koma í staðinn en ekki kemur fram hvernig staður þetta mun vera.

Nafnlausi pizzstaðurinn við Hverfisgötu hefur staðið þar síðan 2014.