Þuríður Backman
Þuríður Backman
Þriggja manna rannsóknarnefnd, sem varpa á ljósi á aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna, er enn óskipuð. Skipun nefndar er í höndum forseta Alþingis og forsætisnefndar. Að sögn Þuríðar Backman, sem situr í forsætisnefnd, hefur enn ekki unnist tími til að skipa nefnd. „Nú er komið þinghlé og forsætisnefnd heldur næst vinnufundi í ágúst en hvort það verði kallaðir til fundir fyrir þann tíma er ég ekki viss um. Það er þó hægt að fullvissa alla um það að það verður ekki undan því skorist að fara í þessar rannsóknir,“ segir Þuríður.