„Ég tel að það eigi að lækka fjárframlög til þeirra stofnana sem fara ekki eftir lögum um opinber innkaup. Ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að ríkisstofnanir fari eftir lögunum," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður og varaformaður fjárlaganefndar, í samtali við Morgunblaðið .

Þar segir Guðlaugur að ríkið gæti sparað stórar fjárhæðir, eða milljarða á hverju ári, ef allar ríkisstofnanir færu eftir lögum um opinber innkaup. Hann segist hafa óskað eftir minnisblaði frá Ríkiskaupum á liðnu hausti um aukna hagkvæmni í opinberum innkaupum í tengslum við fjárlagavinnuna.

Samkvæmt minnisblaðinu telji Ríkiskaup sterkar vísbendingar vera um að 60% af innkaupum ríkisins hafi verið í samræmi við rammasamninga sem voru í gildi árið 2013. Það þýði að allt að 40% af innkaupum ríkisins hafi verið utan laga um opinber innkaup.