Miðvikudaginn 19. mars verður „skattadagur“ í Alþjóðahúsinu, en frá kl. 9:00 til kl. 21:00 munu laganemar Háskólans í Reykjavík ásamt sérfræðingum frá Deloitte aðstoða erlenda einstaklinga við gerð skattframtala.

Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, hefur síðastliðið ár boðið innflytjendum upp á ókeypis lögfræðiaðstoð. Í ljós kom að á því tímabili sem skattgreiðendur skila framtölum sínum annaði kerfið því ekki að veita öllum þeim aðstoð sem á þurftu að halda. Var það kveikjan að samstarfi Lögfræðiaðstoðar Lögréttu, Alþjóðahúss og Deloitte, en þjónusta sem þessi er nýlunda hér á landi.