Snorri Kristjánsson hefur verið ráðinn sem markaðsstjóri Keahótela ehf. Snorri hefur starfað sem sölu- og markaðsfulltrúi hjá fyrirtækinu undanfarið eitt og hálft ár og munu breytingarnar taka gildi frá og með deginum í dag

Snorri lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst árið 2010 og M.Sc. gráðu í vörumerkjastjórnun og stjórnun markaðssamskipta frá Copenhagen Business School í Danmörku árið 2014.

Snorri kemur til með að sinna stefnumótun og áætlanagerð í markaðs- og ímyndarmálum fyrirtæksins, daglegum rekstri markaðsdeildar, samskiptum við fjölmiðla og samstarfsaðila ásamt vöruþróun.