Gengisvísitalan var 172,3 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 2,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 2,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.
Þangað til í dag hafði gildi gengisvísitölunnar slegið met á hverjum einasta degi vikunnar og veiktist krónan í samræmi við það. Við opnun gjaldeyrismarkaða í morgun styrktist krónan hins vegar nokkuð og hafði um tíma styrkst um tæp 3%.
Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð. Miðað er við lokagengi á mörkuðum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.
Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 173 stig en var í gær 177,3 stig sem þá var hæsta opinbera gengið til þessa.
Krónan hefur engu að síður veikst um 2,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.
Þá hefur krónan veikst um 29,6% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi í byrjun árs.
Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 91,4 krónum, Evran í 131,3 krónum og Sterlingspundið í 167,3 krónum.
Þá stendur svissneskur franki í 82,3 krónum, japanskt jen í 0,85 krónum og danska krónan í 17,6 krónum.