Styrktartónleikar, sem halda átti milli jóla og nýárs en þurfti að fresta vegna vegna veðurs verða haldnir á morgun, sunnudag í Háskólabíó kl. 16:00

Í tilkynningu frá Concert segir að það sé orðinn árviss viðburður að framvarðasveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.

Nú hafa Páll Óskar Hjálmtýrsson, Jogvan og Snigglabandið bæst við hóp flytjenda og leysa af Dísellu og Sprengjuhöllina sem ekki komast vegna breyttrar dagsetningar.

Á undanförnum árum hafa  yfir 22 milljónir króna safnast á  þessum tónleikum, og nú  er markmiðið að sú upphæð hækki í 24 milljónir króna. Tónleikarnir voru fyrst haldnir árið 1998. Sömu styrktaraðilar hafa unnið að málinu í frá upphafi  en það er Bylgjan, Stöð2, EB Hljóðkerfi og Concert.

Þá segir í tilkynningunni að á tónleikunum í gegnum tíðina hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið vinnu sína til fulls. Háskólabíó gefið húsnæðið. Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki sem að verkefninu hafa komið hafa líka gefið alla sína vinnu.