Stjórn Þórkötlu hefur samþykkt kaup á 263 fasteignum í Grindavík og hafa eigendur viðkomandi fasteigna fengið staðfestingu þess efnis. Í tilkynningu segir að samþykktar umsóknir hafi verið sendar í kaupsamningsgerð sem gæti tekið allt að tíu virka daga.

Heildarfjárhæð viðskipta sem stjórn Þórkötlu hefur samþykkt nemur um 20 milljörðum króna en alls hafa 732 umsóknir borist. Stefnt er að því að samþykkja kaup á 100 eignum til viðbótar í vikunni og verður þá búið að samþykkja ríflega helming allra umsókna sem borist hafa Þórkötlu.

„Við erum að taka við þessum eignum Grindvíkinga núna en markmiðið er að þeir sem vilja geti keypt þær til baka síðar. Fyrri eigendur geta keypt þær á sömu kjörum eða 95% af brunabótamati líkt og reglugerð kveður á um. Þá erum við að gera ráð fyrir að fólk geti leigt þær af okkur í millitíðinni. Við vonumst til að eiga gott samstarf við samfélagið um þessi atriði.“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri félagsins.

Frágangur kaupa Þórkötlu á eignum í Grindavík hefur farið fram með rafrænum hætti, með rafrænum kaupsamningi og rafrænni þinglýsingu. Um þrjátíu manns koma að störfum félagsins með einhverjum hætti en verkefnið er unnið í samvinnu nokkurra stofnana.