Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,2% og er 8.011 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis, en hlutabréfamarkaðurinn hefur verið opinn í um klukkustund, þegar þetta er skrifað. Veltan nemur 5,8 milljörðum króna.

Gengi krónu hefuyr veikst um 1,91% og er 119,6 stig.

Exista hefur lækkað um 6,47%, Föreya banki hefur lækkað um 4,62%, Atorka Group hefur lækkað um 4,2%, Straumur hefur lækkað um 3,65% og Kaupþing hefur lækkað um 3,37%.

Þetta er í takt við það sem er á sér stað á erlendum mörkuðum. Bandaríska vísitalan SP500 lækkaði um 1,60% í gæ. DowJones vísitalan lækkaði um 1,73% og NASDAQ um 0,20%. Breska vísitalan FTSE100 hefur lækkað um 0,2% það sem af er degi, norska vísitalan hefur lækkað um 0,23%, sænska vísitalan OMX hefur lækkað um 0,55%, danska vísitalan KFX hefur lækkað um 1,07% og þýska vísitalan DAX hefur lækkað um 0,8%.

Japanska vísitalan Nikkei lækkaði um 1,56% í nótt.