Tillaga frá Fastefli ehf., sem nam rúmlega 800 milljónum, fékk hæstu einkunn varðandi tilboð í verkið „Byggingaréttur á Sementsreit á Akranesi" - uppbyggingarreit C og D, en ARKÍS arkitektastofa hannaði vinningstillöguna. Þrjú önnur tilboð bárust í verkið. Skagafréttir greina frá þessu.

Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á þremur hæðum auk bílakjallara á fjórum lóðum á uppbyggingarreit D og á tveimur lóðum á uppbyggingarreit C, líkt og kemur fram í Skagafréttum. Gert er ráð fyrir alls 108 íbúðum í þessum áfanga, en til stendur að byggja alls 400 íbúðir á reitnum auk þjónustuhúsnæðis. Öllum lóðunum er úthlutað til sama aðila.

Í umsögn matsnefndar um vinningstillöguna segir að tillagan sé fallega unnin, spennandi og gefi góð fyrirheit um áframhaldandi byggð á Sementsreit. Í umsögninni segir meðal annars: „Vel er unnið með staðaranda og leitast við að tengja útlit við byggð í bænum. Uppbrot og efnisnotkun er skemmtileg með tilvísanir í nærumhverfi og þekktar byggingar.“

Í samtali við Viðskiptablaðið segir Óli Valur Steindórsson, forsvarsmaður Fasteflis niðurstöðuna ánægjulega. „Enda höfum við lagt gríðarlega mikla vinnu og metnað í undirbúning þessa verkefnis. Verðmætið sem við sjáum umfram aðra í þessu útboði, byggist á framtíðarsýn okkar á uppbyggingu svæðisins í heild sinni. Vonandi getum við lagt okkar að mörkum í þeirri vegferð sem Skagamenn eru í um þessar mundir – að gera gott bæjarfélag betra.“