Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,26% og er 8.150 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 4,5 milljörðum króna.

Landsbankinn hefur hækkað um 0,75%, Atorka Group hefur hækkað um 0,43%, Teymi hefur hækkað um 0,33% og Glitnir hefur hækkkað um 0,18%.

Eimskip hefur lækkað um 2,02%, Föroya banki hefur lækkað um 1,3%, Straumur hefur lækkað um 0,74%, 365 hefur lækkað um 0,71% og Kaupþing hefur lækkað um 0,7%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,5% og er 118,7 stig.