Ein evra kostar nú 215 aflandskrónur samkvæmt upplýsingum á Keldunni. Er þar um miðgengi að ræða en kaupgengi evrunnar er 205 aflandskrónur og sölugengi hennar er 225 krónur. Gengið hefur styrkst undanfarna daga í aðdraganda gjaldeyrisútboðs Seðlabankans og í kjölfar þess.

Opinbert gengi evrunnar hjá Seðlabanka Íslands var á föstudag 165,81 króna.