Eignarhaldsfélagið Stofn ehf., sem er í rekstri og umsjón Boga Óskars Pálssonar, stjórnarmanns í Exista, hefur keypt  32.000.000 hluti í félaginu á genginu 31,006. kaupverðið nemur því tæplega milljarði króna.

Fjöldi hluta í eigu fjárhagslega tengdra aðila eftir viðskipti eru 217.656.147 að því er kemur fram í tilkynningu  til Kauphallarinnar.


Bogi Óskar Pálsson fer með ráðandi eignarhlut í Eignarhaldsfélaginu Stofni ehf.