80,7% landsmanna og 71,2% Reykvíkinga vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni, samkvæmt skoðanakönnun sem MMR vann fyrir Hjartað í Vatnsmýrinni 14.-17. apríl sl. Alls tóku 1.060 manns þátt í könnuninni. Af þeim tóku 938 afstöðu, þar af 333 Reykvíkingar.

Morgunblaðið fjallar um niðurstöður skoðanakönnunarinnar í dag.

Þar segir að allir stuðningsmenn Framsóknarflokksins í Reykjavík vilja halda flugvellinum í Vatnsmýrinni, 87,7% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins, 71,6% stuðningsmanna VG og 49,5% stuðningsmanna Pírata. Þá vekur blaðið athygli á því að 57,5% kjósenda Samfylkingarinnar í borginni sögðust vilja völlinn áfram í Vatnsmýrinni. Í könnun MMR í fyrrahaust voru stuðningsmenn úr röðum Samfylkingarinnar 44,9%. Þá sögðu 44,5% kjósenda Bjartrar framtíðar já nú. Þeir voru 62,6% í fyrrahaust.