Tölva af gerðinni Apple 1, sem er fyrsta kynslóð Apple tölva, var nýverið seld á uppboði fyrir tæpar 60 milljónir íslenskra króna. Söluverðið var meira en helmingi hærra en uppboðsaðilar höfðu áætlað.

Á sama uppboði var minnisblað sem Steve Jobs skrifaði þegar hann vann hjá fyrirtækinu Atari selt fyrir tæplega 3,5 milljónir. Aðeins voru framleiddar um 200 Apple 1 tölvur en þær voru handsmíðaðar af öðrum stofnanda Apple, Steve Wozniak.

Safnarar segja aðeins um 50 tölvur eftir í umferð en sú sem seld var á uppboðinu er ein fárra sem enn virka.

Apple 1
Apple 1