Icelandair hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 13 flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að 12 flugvélum til viðbótar frá Airbus. Flugvélarnar verða afhentar frá og með árinu 2029, að því er segir í tilkynningu flugfélagsins til Kauphallarinnar.

Icelandair gerir ráð fyrir að hefja rekstur á Airbus vélum á árinu 2025 og samningar um leigu á fjórum flugvélum af gerðinni Airbus A321LR til afhendingar 2025 eru sagðir á lokametrunum, auk þess sem gert er ráð fyrir fleiri slíkum vélum í rekstur fram til ársins 2029.

Icelandair hefur unnið að endurnýjun flugflotans á undanförnum árum og munu þessar vélar endanlega leysa Boeing 757 vélar félagsins af hólmi. Kaupverð vélanna er trúnaðarmál á milli samningsaðila.

„Fjármögnun verður ákveðin þegar nær dregur að afhendingu þar sem fjölbreyttir fjármögnunarkostir verða skoðaðir.“

„Það er ánægjulegt að tilkynna að við höfum nú komist að niðurstöðu um framtíðarflota Icelandair. Við höfum ákveðið að Airbus A321LR og A321XLR verði arftakar Boeing 757 flugvéla félagsins sem munu hætta í rekstri á næstu árum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Boeing 757 vélin sem hefur þjónað félaginu frá árinu 1990 og reynst okkur afar vel hefur verið í lykilhlutverki í uppbyggingu Íslands sem tengimiðstöðvar í flugi og okkar yfirgripsmikla leiðakerfis. Nú munu hinar öflugu Airbus vélar taka við. Þær munu gera okkur kleift að þróa viðskiptalíkan félagsins enn frekar í flugi yfir Atlantshafið og jafnframt skapa tækifæri til að sækja á nýja og spennandi markaði.“

Icelandair segir að flugvélategundirnar sem um ræðir séu hluti af Airbus A320neo fjölskyldu flugvéla sem búi bæði yfir mikilli drægni og eru af nýrri kynslóð sparneytnari og umhverfisvænni flugvéla.

„Þessar flugvélar eru með þeim hagkvæmustu sem völ er á og munu stuðla að lækkun rekstrarkostnaðar, styðja við loftslagsmarkmið Icelandair, og bjóða farþegum þægindi og ánægjulega upplifun.“

Vélarnar rúma um 190 farþega en til samanburðar rúma Boeing 757 flugvélar félagsins 183 farþega, Boeing 737 MAX-8 160 farþega og Boeing 737 MAX-9 178 farþega.

Airbus A321XLR flugvélin hefur allt að 8.700 km drægni „sem gerir Icelandair kleift að nýta vélina á fjarlægari áfangastaði í núverandi leiðakerfi ásamt því að skapa tækifæri til þess að fljúga á nýja áfangastaði“. Þá hafi Airbus A321LR flugvélin allt að 7.400 km. drægni sem geri Icelandair kleift að nýta hana í núverandi leiðakerfi.

„Boeing 757, 767 og 737 MAX flugvélarnar munu halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki í rekstri Icelandair á komandi árum. Icelandair hefur átt farsælt viðskiptasamband við Boeing í áratugi og hafa Boeing vélarnar verið lykilþáttur í þróun og árangri félagsins. Fram til ársins 2025 mun Icelandair áfram reka flugflota sem samanstendur einungis af Boeing flugvélum en frá afhendingu fyrstu Airbus vélanna mun félagið reka blandaðan flota sem mun samanstanda bæði af Airbus og Boeing flugvélum.“