Kaffitár tapaði 19,8 milljónum króna árið 2015. Árið áður hagnaðist fyrirtækið um 1,6 milljón. Tap félagsins fyrir skatta árið 2015 nam 24,7 millj­ ónum. Í lok árs 2015 voru eignir Kaffitárs metnar á 769,9 millj­ ónir samanborið við 766,6 milljónir árið áður.

Eigið fé Kaffitárs í lok árs 2015 nam 329,5 milljónum og skuldir félagsins námu 440,3 milljónum. Launakostnaður fyrirtækisins var 402,6 milljónir króna árið 2015. Fyrr á þessu ári tók Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir við sem forstjóri fyrirtækisins af Aðalheiði Héðinsdóttur.