Nýr ritstjóri Vikudags á Akureyri tekur við í september. Í maí var tilkynnt að Kristján Kristjánsson, dagskrárgerðarmaður á N4, tæki við stöðu ritstjóra af alnafna sínum Kristjáni Kristjánssyni. En nú hefur sá fyrrnefndi hins vegar tilkynnt að hann muni ekki taka við starfinu af persónulegum ástæðum. Morgunblaðið greinir frá.

Í fréttinni er haft eftir Bjarna Hafþóri Helgasyni, stjórnarformanns útgáfufélags Vikudags, að búið sé að leysa málið óformlega og að aðeins eigi eftir að ganga frá því. Bjarni segir að vel hafi gengið að finna nýjan ritstjóra og töluverður áhugi hafi verið á starfinu.