Gengisvísitalan var 156,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,3% frá opnun markaða í morgun en 1,5% frá opinberu gengi Seðlabankans í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Lokagildi dagsins í dag miðast þó við markaðsgengi við lok markaða.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 158,7 stig en var í gær 157,5 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 121,5 krónum, Bandaríkjadalur í 78,5 krónum og Sterlingspundið í 152,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,4 krónum og japanskt jen í 0,75 krónum.