Gengisvísitalan var 160,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan styrktist um 0,5% í gær en hóf að veikjast nokkuð hratt strax við opnun gjaldeyrismarkaða í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,2 stig en var í gær 159,9 stig.

Krónan hefur nú veikst um 1,5% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 85 krónum, Evran í 123,2 krónum og Sterlingspundið í 151,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 76,9 krónum, japanskt jen í 0,79 krónum og danska krónan í 16,5 krónum.